Forsíða Áfangastaðir Andalúsía 2012
Andalúsía 2012

andalusia 2011 355 Sierra Nevada er hæsti fjallgarður Evrópu utan Alpanna. Sunnan hans eru Alpujarras dalirnir og síðan Miðjarðarhafið. Á þessu svæði var síðasta vígi Máranna sem lögðu undir sig stóran hluta Spánar á 8. öld. Þeir réðu að lokum aðeins nokkrum höfnum í grennd við Cadiz en misstu þær árið 1492. Í Alpujarras er menning Mára allstaðar áberandi; í byggingarlist, matargerð og allri mótun umhverfisins. Í dölunum eru stallaræktanir mjög algengar og þar hefur vatn verið leitt marga kílómetra til að nýta sem best þetta frjósama svæði. Menningin er blómleg, gróður og dýralíf fjölbreytt og fallegar og áhugaverðar gönguleiðir eftir gömlum þjóðleiðum. Göngu-Hrólfur býður í fyrsta sinn upp á spennandi gönguferð um Sierra Nevada eða Snjófjöllin og Alpujarras dalina. Leitast er við að kynna göngumönnum sem fjölbreyttastan hluta svæðisins. Gengið er í gegnum hina einstaklega fallegu Alpujarras dali, gegnum hvítkölkuð þorp og upp á fjallahryggi Nevada fjallanna. Fyrsti áfangastaðurinn er Capileira og sá síðasti Cadiar. Á frídegi gefst áhugasömum tækifæri til að fara til Granada og skoða Alhambrahöllina.

 

 

Fjallastígar Sierra Nevada í Andalúsíu  23. – 30. maí

 

Verð

224.500 kr. + 15.000 vildarpunktar (Verð á mann miðað við 2 saman í herbergi)
*Verð án punkta 234.500 kr.
Aukagjald fyrir einbýli er 35.000 kr.

Innifalið

Flug, skattar, gisting, fullt fæði, Íslensk fararstjórn

*Ekki innifalið

Ferð til Granada og hádegisverður á frjálsum degi ásamt komu og brottfaradegi.

Innifalið

Flug, fararstjórn, gisting, flutningur og fullt fæði, þó ekki ferð til Granada og hádegisverður 6. dag, né heldur ferðadagana.

Fararstjórar

Steinunn Harðardóttir og heimamaður.

Bókanir og nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar og bókanir hjá Vita.is í síma 570 4444 eða á tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.