Slóvakía
6. – 14. ágúst 2012
Erfiðleikastig: 2 fjöll - Hefðbundinn taktur
Slóvakía er lítið land í miðri Evrópu sem var hluti af gömlu Tékkóslóvakíu fram til ársins 1993. Þar eru margir spennandi fjallgarðar, þjóðgarðar og fjölmörg friðlönd sem gaman er að ganga um. Við bjóðum upp á gönguferð um þetta fallega og fjölbreytta land. Gengið er eftir grasi grónum fjallahryggjum Litlu- Fatrafjallanna, um ævintýraleg gil Slóvensku paradísarinnar, og stiklað milli klettaborga og toppa Há- Tatrafjallanna. Og fræðst um einstaklega áhugaverða menningu og sögu landsins. Þar eru meðal annars stórbrotnir kastalar og klaustur, vel varðveitt sveitaþorp og sérstæðar timburkirkjur. Gist er á hótelum á þremur mismunandi og ólíkum stöðum sem gefa góða mynd af þeirri miklu fjölbreytni sem landið býr yfir. Síðustu nóttina er gist í Krakow og farið í fræðandi gönguferð um miðborgina.
Gönguferð í Slóvakíu 6. – 14. ágúst 2012
Fararstjórar
Jósep Gíslason og Ondrej Rajec.Verð
199.500 kr. á mann.Innifalið
Flug, gisting, fararstjórn, allur flutningur og fæði nema ferðadagana, kvöldverður síðasta kvöldið og drykkir með mat.* Það er ekki hægt að nota punkta í þessa ferð.
Í hluta göngunnar er farið um ójafnt landslag með ógreinilegum stígum. Hækkun getur verið 600-800 metrar og sumar dagleiðir geta tekið 8 tíma. Til að njóta ferðarinnar þurfa þátttakendur að hafa reynslu af fjallgöngum og gönguferðum úti í náttúrunni eða verið virkir í einhverri góðri líkamsþjálfun. Það er nauðsynlegt að vera í góðu líkamlegu formi.
Nánari upplýsingar um ferðatilhögun síðar
Bókanir og nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar og bókanir hjá Vita.is í síma 570 4444 eða á tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .




