Dólómíta-Alparnir - ferðatilhögun 2011
Dólómíta-alparnir á Norður-Ítalíu með sínar sérstæðu bergmyndanir hafa í aldanna rás verið rómaðir fyrir mikla náttúrufegurð og tign. Enda hefur þetta einstaka útivistarsvæði höfðað til fjallamanna og útivistarfólks, jafnt að sumri sem vetri. Í fjalllendi Madonna di Campiglio, hins þekkta útivistarstaðar hafa margir Íslendingar notið góðrar dvalar að vetri til undanfarin ár. Í gönguferðinni verður gist allar nætur á Hótel All Imperatore í bænum Madonna og gengið út frá honum enda tengjast margar stórbrotnar gönguleiðir bænum.
6. júlí: Mílanó-Madonna di Campiglio
Eftir kvöldflug með Flugleiðum til Mílanó (lent kl 22.40) verður ekið rakleiðis til Madonna, sem er í um það bil 246 km fjarlægð.
7. júlí Heimssvæðið Madonna di Campiglio
Við tökum daginn rólega, förum yfir kort af svæðinu og skoðum bæinn. Madonna stendur í 1.560 m hæð, bærinn var í byrjun síðustu aldar fyrst og fremst sumardvalarstaður en það breyttist og um nokkurt skeið hefur hann einkum verið þekktur sem frábær skíðastaður. En undanfarin ár hefur áhugi göngu– og útivistarfólks á þjóðgarðinum Adamello-Brenta aukist á ný enda er umhverfið engu líkt og mannlífið einstaklega notalegt. Heimamenn hafa líka áttað sig á nauðsyn þess að hugsa vel um þessa náttúruauðlynd sína og til að mynda er algerlega bannað að fella tré í þjóðgarðinum án samþykkis yfirvalda, einnig er bygging húsa háð mjög ströngum skilyrðum. Madonna er inn í miðjum þjóðgarðinum og ber yfirbragð bæjarins þess merki til dæmis er bílaumferð mjög takmörkuð. Við förum í létta göngu í nágreni bæjarinns til þess að hita okkur upp fyrir átök vikunnar.
8. júlí Lago Malghette – Pradalago 4-6 klst ganga
Gangan hefst í Madonna og gengið í áttina að Campo Carlo Magno (1.682 m). Þaðan liggur tiltölulega auðveld leið meðfram skógajaðrinum og fögrum fjallavötnum og útsýnið er óviðjafnanlegt. Landslagið einkennist af háum tignarlegum fjöllum, aðallega úr kalksteini og dólómíti og eru tindarnir allt að 3.000 m háir. Við borðum hádegisverð á “sæluhúsinu” Rifugio Nambino).
9. júlí Fimm vatna leiðin 6-7 klst ganga
Þessi leið er með fallegri göngum á svæðinu, hún hefst við fjallið upp af Madonna og áfram er haldið meðfram fjallavötnunum: Lambin (2.324 m),Ritorto, Serdoli (2.370), Gelato (2.393 m), Nero (2.236) og Nambino (1.768 m). Útsýnið yfir Brenta fjallgarðinn er ævintýri líkast eða eins og póstkort. Við borðum hádegisverð við Nambino vatnið.
10. júlí Frjáls dagur
Þennan dag tökum við það rólega, þeir sem vilja geta slappað af allan daginn en fyrir þá sem hafa áhuga er boðið upp á stutta göngu og hádegisverð úti í skógi þar sem við eldum polentu og steikjum buff, með þessu borðum við bræddan ost og rauðvín þarna taka allir þátt í matseldinni við opinn eld karlarnir hræra í polentunni meðan konurnar leggja á borð og njóta lífsins.
11. júlí Tucket-jökull 5-7 klst ganga
Þessi dagur er einn af hápunktum ferðarinnar. Gengið verður um einkar fagurt svæði, leiðin liggur um furu- og beykiskóga þar sem lævirkinn syngur við hvern sinn fingur og framhjá nokkrum litlum “sæluhúsum” og upp að Tucket-jökli. Þar snæðum við hádegisverð á Rifugio Tucket (2.283 m). Á bakaleiðinni er gengið um Vallesinella-svæðið og framhjá einstaklega fallegum fossum.
12. júlí Groste og Pietra Grande 5 klst ganga
Og ekki er þetta síðri göngudagur. Farið frá Groste, og áfram upp á fjallið Pietra Grande (2.900 m) en þaðan er útsýnið víðfrægt, enda vægast sagt alveg frábært. Við borðum hádegisverð í “sæluhúsinu” Rifugio Graffer (2.261 m). Á heimleiðinni förum við annaðhvort um Sentiero dell Orso (Bjarnarslóðina) eða Orti della Regina (Drottningarslóðina) og auðug flóran skartar sínu fegursta í júlí. Svæðið er einnig þekkt fyrir ævaforna steingerfinga.
13. júlí Heimferð
Í dag höldum við heim á leið en þar sem flugið er ekki fyrr en kl. 23:40 þá förum við austanmegin við Gardavatn og stoppum á nokkrum stöðum og njótum fegurðar Gardavatns.
Gönguferðin sem er unnin í samvinnu við heimamenn getur tekið breytingum.
|