Forsíða Áfangastaðir Kanaríeyjar

Fjallastígar Gran Canaria páskar 2012

Í hefðbundnum taki 2 fjöll

tenerife img_4264 Gran Canaria er eldfjallaeyja sem rís eins og stórt fjall upp úr sjónum, hæsti toppurinn Pico de las Nieves er 1.950 metrar yfir sjávarmáli. Það er oft sagt að eyjan sé eins og dvergheimsálfa vegna fjölbreytts landslags og náttúru. Gran Canaria hefur verið mikilvægur áfangastaður íslenskra ferðalanga í áraraðir en fæstir þeirra leggja land undir fót og feta í fótspor bænda og frumbyggja sem lögðu leiðir yfir hálendið. Þar er úfið fjalllendi, sjaldgæfur gróður, ýmsar minjar um líf og lifnaðarhætti íbúanna fyrr á öldum og fjölmargar fornar leiðir. Göngu-Hrólfur býður nú upp á spennandi gönguferð um fjallastíga þessarar eyjar sem er að ýmsu leyti lík Íslandi en að öðru leyti gjörólík svo sem loftslagið, hitastigið, gróðurinn og menningin.
Á fimm fjölbreyttum göngudögum gefst tækifæri til að upplifa og skoða nokkra af fallegustu stöðum eyjarinnar. Suma dagana er gengið eftir konunglegu gönguleiðunum (camino real) sem voru lagðar af frumbyggjunum um undurfagurt landslag, spennandi gil, furuskóga, blómstrandi fjallshlíðar og framhjá mörgum sérstæðum hellabyggðum. Það verður meðal annars gengið á Snjótindinn „Pico de las Nieves“ og að klettadranginum „Rocque Nublo“, Skýjaklettinum, hann gnæfir upp úr fjalllendinu á miðri eyjunni og setur mikinn svip á umhverfið.
Gist er á  hóteli á Mas Palomas ströndinni og ekið þaðan upp í fjöllin.
Gönguferðirnar taka á bilinu 4-5 tíma, gengið er um 12-16 kílómetra á dag og mesta hækkun er 700 metrar.


Fjallastígar Gran Canaria 1. – 10. apríl 2012

Verð

Verð á mann í tvíbýli: 239.500 + 15.000 punktar
Verð án punkta: 249.500 kr.

Innifalið

Allur flutningur, leiðsögn, gisting og  morgun- og kvöldmatur allan tímann.

Ekki innifalið

Drykkir með mat, hádegisverður, matur ferðadagana.

Fararstjóri

Steinunn Harðardóttir

Ath. Það getur þurft að breyta dagskránni vegna óhagstæðs veðurs eða af öðrum óviðráðanlegum ástæðum.

Bókanir og nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar og bókanir hjá Vita.is í síma 570 4444 eða á tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .