Fjallastígar Gran Canaria páskar 2012
1. – 10. apríl 2012
Í hefðbundnum takti 2 fjöll
Dagur 1
Reykjavík, Gran Canary – Mas Palomas
Komið á hótel á Maspaqlómaströndinni þar sem dvalið verður allan tímann. þaðan verður síðan ekið á áfangastaðina.
Dagur 2
Santa Lucia hringurinn
Gangan hefst í „Santa Lucia“ sem er fallegt lítið fjallaþorp með hvítkölkuðum húsum og pálmalundum. Í nágrenninu er mikill bergveggur „Fortaleza Grande“ sem er í laginu eins og virki. Sagan segir að Guanchar sem bjuggu á eyjunni þegar Spánverjar lögðu hana undir sig hafi neitað að taka kristna trú árið 1483 og kastað sér fram af þessum kletti. Fljótlega er farið í gegnum smáþorpið Ingenio og að hinu rómanstíska gili Barranco de Tirajanas. Þá er haldið eftir pálmum skrýddum stíg að Sorrueda vatninu og síðan til Ansite. Á forsögulegum tíma voru hinir látnu lagðir til hinstu hvílu í óaðgengilegum hellum sem þarna eru. Síðan er gengið til baka til Santa Lucia. Göngutími 4.5 tímar, gengið 12 km, hækkun/lækkun 300m.
Dagur 3
Í kringum spennandi hellabyggðir
Þetta er mjög spennandi ganga á norðvestur hluta eyjarinnar. Hún hefst rétt vestan við „Artenara.“ Eftir að farið hefur verið í gegnum smáþorpið La Coruña sem státar af tveimur mjög stórum hellahúsum er haldið áfram til „Cruz de las Mentiras“ (Lygakrossinn) – Þetta er mjög sérstakur staður með útsýni yfir vatnið Los Perez og hellahúsin í Lugarejos. Á leiðinni til Pinar de Tamadaba blasir við útsýni til norðvestur strandar eyjarinnar. Að lokum er farið eftir einstaklega fallegum stíg með frábæru útsýni yfir til Teide, Roque Nublo og Roque Bentayga. Á bakaleiðinni er farið gegnum Tamadaba skóginn, þar vex Kanaríeyjafura sem einkennist af mjög löngum og fínlegum nálum. Gengið um 5 tíma, 13 kílómetra hækkun/lækkun 700m
Dagur 4
Útsýnisganga frá Pico de las Nieves (1949) til Artenara
Í dag er haldið upp að miðju eyjarinnar og sikk-sakkað eftir mjóum stíg framhjá litlum þorpum, ekrum, hásléttum, djúpum giljum og sérkennilegum klettum. Gangan hefst við „Pico de las Nieves“, Snjótindinn, hæsta fjall eyjarinnar og við blasa standbergin „Roque Nublo“ (1.813 m), Skýjakletturinn og „Roque Bentayga“ (1.412 m). Það er yfirleitt svalara og þokusamara hér uppi en niðri við ströndina svo hæstu tindarnir eru stundum huldir skýjum. Í góðu veðri er frábært útsýni yfir einstakt landslagið og yfir til Tenerife. Leiðin liggur til „Cruz de Tejeda“ sem er landfræðileg miðja Gran Canaria meðal annars eftir hæstu brúnum Tejeda gígsins sem er mjög stór. Að lokum er farið eftir fallegum stíg að þorpinu „Artenara“ sem er í 1.270 meta hæð og er bæði hæsta og elsta þorp eyjarinnar. Þetta óvanalega þorp eins og hangir utan í klettunum og mörg húsanna eru byggð inn í hella frá forsögulegum tíma. Þaðan er frábært útsýni til Teide. Göngutími 5 tímar, lengd u.þ.b. 16 km, hækkun 200 m lækkun 850 m
Dagur 5
Umhverfis Cira vatnið, Cercado de Araña – Cruz Grande
Í dag er gengið umhverfis „Chiravatnið“ sem er stærsta stífla eða manngerða vatn á eyjunni. Gangan hefst í litlu þorpi „Cercado de Araña“, þaðan er farið í gegnum einstaklega fallegt gil „Barranco los Ahogados“ og haldið til „Cruz Grande“ eftir fallegum stíg sem býður upp á frábært útsýni til allra átta. Við blasir „Ciravatnið“ og dalirnir umhverfis. Síðan er haldið niður að stíflunni og þaðan aftur þangað sem gangan hófst. Göngutími um 4 -5 tímar, gengið um 15 kílómetra, hækkun og lækkun 300 m.
Dagur 6
Lomo de Aserrador – („Roque Nublo“) Skýjakletturinn – Cruz Grande
Eftir skemmtilega göngu um hinn fallega dal „Lomo de Aserrador“ er komið að hinum sérstæða klettadrangi „Roque Nublo“ (1.743 m), efst á honum er 80 metra hár bergstandur eða basalt fingur sem bendir beint til himins og var talinn heilagur hjá frumbyggjunum. Skammt frá er annar og minni bergstandur, Munkurinn „El Freire“ en saman mynda þeir sterka og sérstæða heild. Stígurinn sem er forn pílagrímaleið til Santíago „Camino Santiago“ liggur síðan meðfram „Los Hornos“ vatninu og gegnum furuskóginn „Llanos de la Pez“ þar til komið er að „Cruz Grande“ þar sem göngunni lýkur. Göngutími 5 tímar, lengd um 15 km, hækkun 440 m lækkun 590 m.
Dagar 7-9
Frjálsir dagar í Mas Palomas
Dagur 10
Haldið heim
|