Gönguferð í hefðbundnum takti á Tenerife
Tenerife er eldfjallaeyja eins og allar eyjarnar í Kanaríeyjaklasanum og stærst þeirra. Kólumbus gat þess í skrifum sínum að þar væri eldgos þegar hann sigldi hjá á leið til Nýja heimsins. Eldfjallið Teide er hæsti tindur Spánar 3.718 metra hár og er toppurinn þakinn snjó mestan hluta ársins. Teide stendur á brúnum mikillar öskju ásamt fjölmörgum öðrum fjallatindum. Þarna er landið opið og hrjóstrugt og einkennist af sandorfnum klettum og hrauni í fjölmörgum litbrigðum af brúnu gráu og svörtu. Á austur og vestur Tenerife eru brattar og grænar fjallshlíðarnar, suðurhliðin er þurr og ófrjósöm en í norðri er eyjan græn og frjósöm. Á Tenoskaganum sem er á norðvesturhluta eyjarinnar eru sæbrattar strendur og stórbrotnir sjávarklettar sem nefnast Los Gigantes eða Risarnir. Á Anagaskaganum í austri eru brattir fjallahryggir sem bjóða upp á spennandi göngur og frábært útsýni yfir Atlandshafið. Á milli þessara tveggja skaga er Orotavo dalurinn þar sem fjallshlíðarnar eru klæddar ljósleitri furu. Allt þetta land er í órafjarlægð frá ferðamannastöðunum sem flestir þekkja til.
Um ferðina
Í þessari spennandi gönguferð er gist á norðurhluta eyjarinnar í bænum Puerto de la Cruz á góðu þriggja stjörnu hóteli með sundlaug, góðri æfingaraðstöðu og gufubaði. Eyjan er eins og tígull í laginu og á miðju hennar rís Teida í öllu sínu veldi. Þar verður farið um spennandi stíg og haldið upp á hið litfagra fjalla „Mountana Blanca“ Hvíta fjallið. Hið ævintýralega Masca-gil er heimsótt og gengið er um svarta sanda, furu-og lárviðarskóga og spennandi fjallatoppa á Anagaskaganum í austri og Tenoskaganum í vestri.
Hægt er að skipuleggja ferð ef fólk hefur áhuga
Bókanir og nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar og bókanir hjá Vita.is í síma 570 4444 eða á tölvupósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.