Forsíða Áfangastaðir Tenerife Tenerife ferðatilhögun

Gönguferð á Tenerife - Ferðatilhögun 2011

Dagur 1 Reykjavík –Tenerife

tenerife img_4248 Frá flugvellinum er ekið til Puerto de la Cruz þar sem gist er á góðu hóteli allan tímann. http://www.hotel-marte.com/


Dagur 2 Arenas Negras hækkun og lækkun 300 metrar

Við byrjum á því að kanna eldfjallið sem síðast gaus á Tenerife, Chineyero og Svarta Sandfjallið sem lagði hluta þorpsins Garachico í eyði árið 1706. Á svæðinu sem farið er um eru miklar andstæður milli og svartra eyðisanda. Það er gengið í gegnum einstaka furuskóga því Kanaríueyjafuran finnst hvergi annar staðar en á Kanaríeyjunum. Í skóginum leynast báir fallegir fuglar ‘blue chaffinch’ sem einnig eru einlendir fyrir eyjarnar. Þeir sem hafa augun hjá sér ættu að koma auga á nokkra fugla á göngunni. Farið er um þægilegt gönguland, skógarstíga og slétta sanda.
Lengd göngu : 5-6 tímar. Hækkun: 300 metrar. Lækkun: 300 metrar.




Dagur 3 Puntal del Higaldo-Chinamada á Anagaskaganum hækkun 600 metrar

Í dag könnum við Anagafjallendið sem er á norð austur hluta Tenerife. Þessi úfni fjallgarður, líklega sá elsti á eyjunni, er víða þakinn gömlum og sérstæðum lárviðarskógi. Þarna er mikið af hvössum1000 metra háum fjallatindum og djúpum spennandi giljum sem víða eru óaðgengileg. Úti fyrir ströndinni eru rómantísk rif og klettar. Gangan hefst niðurt við sjó hjá bænum Puntal del Higaldo. Þaðan er gengið eftir stígum heimafólks sem eru þægilegir og fallega staðsettir í hlíðunum. Fyrst er gengið að bænum Batan sem er í 600 metra hæð, en þar var eitt sinn mikla línvinnslu. Á leiðinni er einstakt útsýni á hlíðarnar umhverfis. Eftir stutt stopp í bænum er haldið áfram yfir gilið Rio. Hér blasir við frábært útsýni yfrir norður ströndina, djúp gil og yfirgefnar stallaræktanir. Gangan endar í bænum Chinamada sem er þekktur vegna hellabústaðanna sem þar eru. Bærinn var fyrst byggður af frumbyggjum Tenerife Guancherne. Við skoðum einn hellanna og gæðum okkur á tapas áður en haldið er heim á leið.
Lengd göngu: 5 -6 klst. Hækkun 600 metrar.


Dagur 4 Masca-gilið

tenerife img_4146 Frá Masca (600m) niður á strönd og bátur til baka Tenofjöllin á norðvestur hluta eyjarinnar eru með elstu fjöllum Tenerife. Þar ganga mikið af skemmtilegum giljum út í klettótta vesturströndina sem er bæði hrikaleg og heillandi. Ein mest spennandi og ævintýralegasta gönguleið eyjarinnar liggur um Masaca gilið “Barranco de Masca” sem er djúpt og þröngt og umlukið 600 metra háum klettaveggjum. Þangað liggur leiðin í dag. Eftir rútuferð til Masca er gengið um Masca garðana og meðfram litlum læk þar til komið er inn í einstætt völundahús með klettum, giljum og sprungum. Eftir því sem gangan færist nær sjónum verður sjávarhljóðið æ háværara og magnaðra þar til gilið opnast niður á ströndina. Síðan er farið í skemmtilega 1.5 tíma bátsferð til baka þar sem möguleiki er á sjá höfrunga. Á leiðinni virðum við fyrir okkur mikilfenglega Gigantes klettana, hæstu standbjörg Evrópu. Göngulandið er grýtt og víða bratt, það þarf að vera nokkuð fótviss.
Lengd göngu: 3-4 klst. Lækkun 600 metrar.




Dagur 5 Chamorga á Anagaskaganum hækkun og lækkun 750 metrar

tenerife img_4506 Í dag er enn haldið á Anagaskagann og gangan hefst við bæinn Chamorga sem kúrir á austasta odda eyjarinnar og stendur hátt á einstaklega fallegum stað. Umhverfi hans er sannkölluð paradís göngumanna steinlagðir krókóttir stígar með stórbrotnu útsýni til strandarinnar . Frá bænum er genginn skemmtilegur hringur. Haldið er eftir þröngu skuggsælu gili niður til sjávar að vitanum á Roque Bermejo, útverði eyjarinnar. Á leiðinni er frábært útsýni til sjávnar . Niðri á ströndinni er spennandi strandgróður . á leiðinn til baka til Camorga má sjá áhugaverðar minjar um gamaldags kolagerð
Lengd göngu: 5 tímar. Hækkun: 750 m. Lækkun: 750 m.


Dagur 6 Hvíta fjallið Montana Blanca

í Teide þjóðgarðinum hækkun 500 lækkun 750 m. Nú er haldið inn i þjóðgarðinn “Parque Nacional de las Cañadas del Teide” sem er askja 16 sinnum 10 km í þvermál og er Teidefjallið í útjaðri hennar. Landslagið hefur að mestu myndast í tveimur landsigum og fjölmörgum eldgosum og víðáttumiklar sandauðnir, sérkennilegar klettamyndanir og hvít fjöll setja svip á landslagið. Teide gnæfir yfir öllu eins og strýta og sést langt að. Við höldum upp undir fjallabrúnina en þar er hvítleitt eða ljósbleikt auðklifið fjall ’Montana Blanca’ eða Hvíta fjallið 2750 metrar á hæð en hækkun í göngunni er þó aðeins 500 metar. Að fjallgöngunni lokinni er haldið til El Portillo sen er einkonar hlið inn í þjóðgarðinn. Hafa verður í huga að súrefnismagnið og hitastig er ekki það sama og á láglendi.
Lengd göngu: 5 tímar .Hækkun: 500 metrar Lækkun: 750 metrar.


Dagur 7 El Bailadero á Tenoskaganum

tenerife img_4519 Við höldum nú á norðvestur hluta eyjarinnar á Teno skagan þar er fjalllendið mjög frábrugð fjöllum austurhlutans sem við höfum þegar kannað. Hér bíður okkur frábær ganga um efsta hluta Tenoskagans að bænum El Bailadero. Farið er frá Bolic um útsýnisstaðinn Tabaiba, Bargan hrygginn upp til Teno Alto. Á leiðinni er einstaklega fallegt útsýni yfir eyjuna til eyjarinnar Gomeru og til Teide. Hér má finna nokkra geitabúgarða á annars yfirgefnum stöllunum . Þegar komið er til Bailadero á Teno Alto fáum við að bragða á osti heimamanna.
Gengið: 5-6 tíma hækkun og lækkun 200 metrar.


Dagur 8 Tenerife –Reykjavík


Fararstjóri er nánari upplýsingar síðar

Verð:
nánari upplýsingar síðar

Verð án vildarpunkta:
nánari upplýsingar síðar

Innifalið: Flug, íslenskur fararstjóri og innlendir leiðsögumenn.  nánari upplýsingar síðar
Ath að ferðin getur tekið smávægilegum breytingum.

Lágmarksfjöldi í gönguferðirnar er 12. manns.

tenerife img_4276