Forsíða Áfangastaðir Toscana - Gönguferð

Toscana

Toscana_14_small

Norðvestur Toscana er af mörgum talið eitt best varðveitta leyndarmál Ítalíu. Þetta afskekkta hérað býður upp á einstaklega fjölbreytta náttúrufegurð, stórbrotin fjallasýn blasir hvarvetna við, auðug flóra skartar sínu fegursta og mannlífið byggir enn á gömlum hefðum. Gangan hefst í Appennína-fjallgarðinum sem skilur að Toscana og Emili Romagna. Þar í hinum villta skógi sem hefur varðveitt fegurð sína í gegnum aldirnar ríktu áður stigamenn sem réðu hverjir fóru um héraðið. Gist verður í gömlu afskekktu bóndabýli fyrstu nóttina. Næsta dag er gengið á fjallahryggjum Appennínafjallgarðsins yfir í Orecchiella þjóðgarðinn. Innan um svipmikið og klettótt fjalllendi skiptast á laufskrúðug skóglendi, grösugar sléttur og ávalar hæðir.

Mjög takmörkuð byggð er í garðinum en dýralíf og blómskrúð því fjölbreyttara. Gist verður tvær nætur í fjallahóteli í bænum Corfino og gengið upp á bæjarfjallið Pania de Corfino. Síðasti gististaðurinn í ferðinni er bændabýli sem býður upp á góða gistingu í tveggja manna herbergjum í litlum húsum. Þaðan er farið í skemmtilega fjallgöngu á fjallatoppinn Pizzo de Uccelo sem er 1.780 metra hár og einn af mörgum í Apuanfjallgarðinum. Annan dag verður gengið um skóga og akra og farið í skoðunarferð um vín- og ólívuekrur. Síðasta daginn er gilið og nttúruundrið Oritro Botri skoðað bæði neðan frá og ofan.

 

Gönguferð fyrir sælkera 18. -25. júní 2012

Gönguferð um fjallastíga Toscana 9. - 16. júní 2012


Bókanir og nánari upplýsingar

Nánari upplýsingar og bókanir hjá Vita.is í síma 570 4444 eða á tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .