|
Toscana sælkera 2012 ferðatilhögun |
Gönguferð í „grasa- og sælkeratakti“ um fjalllendi Toscana
Dagsetning 18. - 25. júní 2012
Erfiðleikastuðull 1 fjall
Dvalist verður í Garfagnana-héraðinu í norðvestur Toscana, en það er fjalllent og skógivaxið svæði sem er af mörgum talið eitt best varðveitta leyndarmál Ítalíu. Þetta afskekkta hérað býður ekki aðeins upp á fjölbreytta náttúrufegurð heldur státar jafnframt af einstaklega ríkri matarhefð, frábæru hráefni, spennandi gróðurlendi og fjölmörgum krydd- og lækningajurtum. Gist er í Corfino, litlu fallegu fjallaþorpi við útjaðar Orecchiella þjóðgarðsins. Göngu-Hrólfur hefur boðið upp á sælkeragönguferðir til Toscana í allmörg ár. Þátttakendur læra að elda mat úr héraðinu í eldhúsinu hjá þeim Möru, Roberto og Martínu í fjallahótelinu La Baita. Þá er líka farið út í móa til að tína grös og jurtir til eldamennskunnar. Fjölskyldan elskar að taka á móti íslenskum ferðalöngum og kynna þeim matargerð og leyndardómum Garfagnana. Nú bætum við nýjum og spennandi þætti við því með í för verður Anna Rósa grasalæknir sem kennir hópnum að tína lækningajurtir og gera smyrsl. Auk þess er farið í léttar gönguferðir um nágrennið. Síðan er gist í bænum Castelnuovo sem er miðstöð héraðsins. Þaðan er farið í létta gönguferð, bragðað á sérstæðum mat frá svæðinu og vínbúgarður heimsóttur. Síðasta daginn getur fólk slakað á eða farið með lest til hins fallega og spennandi bæjar Lucca.
Dagur 1
Brottför frá Keflavík 18. júní
Flogið síðdegis til Mílanó og lent þar um 22.40 á staðartíma. Þá er ekið áleiðis til Corfino í u.þ.b. þrjá tíma og gist á hóteli í bænum Aulla.
Dagur 2
Corfino og krydd- og lækningajurtir
Eftir morgunverð er haldið áfram til Corfino sem er lítið fjallaþorp í 822 m hæð í jaðri Orecchiella þjóðgarðsins og u.þ.b. 35 km fyrir norðan bæinn Lucca. Þangað er áætlað að vera komin um hádegi beint í hádegisverð hjá þeim Róbertó og Möru. Þau reka lítið heimilislegt hótel La Baita rétt við rætur fjallsins Pania de Corfino sem er rúmlega 1600 m hátt. Eftir hádegisverðinn skoðum við okkur um í þessu litla þorpi. Róberto leiðir hópinn um þröngar göturnar og fræðir um mannlíf, sögu, byggingarlist og fleira. Þá er haldið upp í fjallshlíðarnar og út um tún og engi til að skoða lækningajurtir undir handleiðslu Önnu Rósu og Robertos. Að lokum bíður okkar ríkuleg máltíð úr eldhúsi Möru.
Dagar 3 og 4
Corfino, Campaniana og smyrslagerð
Næstu tvo daga verður farið í léttar göngur um nágrennið, kryddjurtum safnað og afurðir og hráefni héraðsins kannað. Hópnum er skipt í tvennt. Helmingurinn fer í gönguferð um hlíðar Pania de Corfino upp í fjárhirðaþorpið Campaniana. Áður en lagt er af stað er farið í litlu búðina í þorpinu og keypt í ljúffenga lautarmáltíð sem hópurinn ber í sameiningu. Á meðan er hinn helmingurinn heima á hóteli og eldar matinn fyrir okkur hin með aðstoð Robertos og Möru. Báðir hóparnir nota síðan hvert tækifæri til að skoða, tína lækningajurtir og búa til jurtasmyrsl.
Dagur 5
Isera
Þennan dag yfirgefum við La Baita. Morguninn notum við til að pakka og ganga frá farangrinum áður en lagt er af stað í göngu dagsins. Eftir að hafa keypt inn til hádegisverðar dagsins er hráefninu skipt niður á hópinn og haldið að skemmtilegum fjallaskála þar sem breitt er úr dúknum til sameiginlegs lautarverðar. Þeir sem vilja geta farið upp í fallegan grasagarð með jurtum úr héraðinu og þeir hraustustu geta farið alla leið upp á Pania De Corfino 1600 m. Síðan er haldið til baka til Corfino þar sem rúta bíður og flytur hópinn niður til Castelnuovo sem er verslunarmiðstöð héraðsins. Þar er gist næstu tvær nætur á hótelinu La Lamparia.
Dagur 6
Monte Alfonso kastalinn, Apuan Alparnir og vínbúgarður
Um morguninn er haldið í gönguferð (1-2 tímar) upp að Monte Alfonso kastalanum sem stendur fyrir ofan bæinn. Kastalinn var reistur af Alfonso II greifa af Modena á 16. öld til að verja borgina. Þeir sem vilja leggja meira á sig geta haldið áleiðis upp í Apuan alpana. Svæðið var samþykkt sem jarðvangur haustið 2011 um leið og Katla varð jarðvangur hér heima. Við áætlum að vera komin úr gönguferðinni um 13.30 til að snæða spennandi mat úr héraðinu á sérstæðu veitingahúsi sem nefnist Veccio Mulino. Síðan er haldið með lest til bæjarins Camporgiano og gengið þaðan upp að einum af fáum vínbúgörðum héraðsins til að fræðast um ræktunina og bragða á afurðunum. Garfagnana héraðið er frægara fyrir farro (spelt) kastaníur, góðan ost og kjötvörur heldur en vín, en þarna á vínbúgarðinum hafa menn náð góðum árangri. Kvöldverður á hótelinu.
Dagur 7
Frjáls dagur. Lucca eða rólegur dagur í Castelnuovo
Það er einfalt að taka lest frá Castelnuovo til borgarinnar Lucca. Borgin hét Lukka á íslenska tungu þegar Nikulás Bergsson ábóti á Munkaþverá fór þar um árið 1153. Lucca er einstaklega falleg og sérstök miðaldaborg sem gaman er að skoða. Gamla borgin er umlukin vel varðveittum borgarmúrum og aðal torgið er ellipsulaga og var áður rómverskur leikvangur. Þeir sem vilja geta tekið það rólega við sundlaugina á hótelinu og skoðað sig um í hinum skemmtilega og líflega bæ Castelnuovo. Kvöldverður á hótelinu.
Dagur 8
Heimferð
Um morgunin er hægt að taka það rólega því ekki er ekið af stað áleiðis til Mílanó fyrr en um kl. 15.00 þar sem ekki er flogið til Íslands fyrr en kl. 23.40 um kvöldið.
Fararstjórar
Steinunn Harðardóttir og Anna Rósa Róbertsdóttir grasalæknir.
Verð
Verðá mann í tvíbýli: 199.500 kr. + 15.000 vildarpunktar Verð án vildarpunkta: 209.500 kr. Aukagjald fyrir einbýli: 20.000 kr.
Innifalið
Flug, gisting, leiðsögn, allt fæði nema ferðadagana og hádegismatur 7. daginn. Kennsla í matargerð héraðsins, tínslu lækningajurta og gerð jurtakrema.
Ferðin getur tekið minniháttar breytingum vegna veðurs eða af öðrum ástæðum
Bókanir og nánari upplýsingar
Nánari upplýsingar og bókanir hjá Vita.is í síma 570 4444 eða á tölvupósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
|
|