Gönguferð í Tatrafjöllum Slóvakíu - í hefðbundnum takti
30. júlí - 7. ágúst
Erfiðleikastuðill: 2 fjöll
Hæsti fjallgarðurinn í Karpatafjöllunum, Há-Tatrafjöllin mynda náttúruleg landamæri milli Slóvakíu og Póllands. Fyrr á öldum báru menn óttablandna virðingu fyrir þessum tindóttu og óaðgengilegu granítfjöllum sem gengu þá undir nafninu Snækrýndu fjöllin. Há-Tatrafjöllin eru mynduð á ísöld og þekja um 800 ferkílómetra svæði. Í hverjum dal er eitt eða fleiri stöðuvötn sem safnast hafa í grópir skriðjöklanna og mynda þau fallega andstæðu við hvassa og harða tindana sem ná hæst 2634 metra hæð og 20 þeirra eru yfir 2500 metra háir.
Meirihluta tímanns er gengið um skóga og ekrur, fjöll og dali í þessu stórbrotna landi og dveljum við m.a. í Bænum Poprad sem er á sléttu milli Há- og Lág-Tatrafjallanna og fjallaskála í Há-Tatrafjöllunum. Við heimsækjum líka kalksteinsfjöllin „Belanske“ Tatra sem taka við þar sem Há-Tatrafjöllin enda. Þar er gjörólíkt landslag, grasi grónir tindar sundurskorninr af djúpum og klettóttum dölum og giljum og gróðursælar hlíðar. Landslag í Litlu Fatrafjöllunum sem við heimsækjum líka er nokkuð svipað en fjöllin þó ávalari og slípaðri.
Ferðatilhögun
Flogið til Krakow, þaðan ekið í um 3 tíma í lítinn dal í svokölluðum Mala Fata eða litlu Fatafjöllum þar sem gist verður eina nótt. Þessi fjallgarður er lægri en Há Tatrafjöllin sem við heimsækjun síðar en þau eru ekki síður jarðfræðilega áhugaverð. Þau eru úr kalksteini og dólomiti og einkennast af klettabeltum og grösugum hæðum ad efstu tindunum er gott útsýni Há- Lág og Vestur-Tatrafjallanna og Litlu- -Fatafjallanna. Síðan er haldið til Poprad sem er smábær á sléttunni sem aðskilur Lág- og Há-Tatrafjöllin. Þar er gist á persónulegu hóteli í gamla bæjarhlutanum.
Frá Poprad er haldið á svæði sem hlotið hefur nafnið Slóvanska paradísin. Þetta er kalksteinsháslétta sundurskorin af djúpum giljum sem vatnsmiklar ár hafa grafið í aldanna rás. Þarna er gengið efti giljum, dölum og ævintýralegum járstigum hæðum. Einn dagur verður notaður til að skoða menningarminjar á svæðinu eins og Spis kastalann sem er sá stærsti í Mið-Evrópu (á lista UNESCO).
Þá er haldið í Hvítu-Tatrafjöllin, kalksteinsfjöll við austur enda Há-Tatrafjallanna. Þessir tveir fjallgarðar eru mjög ólíkir því sá síðarnefndi er úr graníti en hinn úr kalksteini. Farið er um þorpið Ztiar sem er þekkt fyrir sérstök og falleg timburhús og haldið þaðan upp brattan dal upp í Siroke sedo, skarð sem er í 1.830 metra hæð og niður hinumegin.
Næsta dag er farangurinn fluttur á fjallahótel við Popdraske vatnið í Há-Tartafjöllunum þar sem gist verður tvær síðustu næturnar. Hópurinn fer þangað gangandi og liggur leiðin undir hæsta tindi Tatrafjallanna, Gerlachovsky sem er 2.655 m. (Þeir sem vilja ganga á fjallið þurfa að panta fjallaleiðsögumann fyrir fram og greiða sanngjarna upphæð sem gildir fyrir 1-4.) Síðasta göngudaginn er haldið á Rysy, hæsta fjall Póllands þar sem hægt er að standa með annan fótinn í Slóvakíu og hinn í Póllandi.
Dagsetningar
30. júlí - 7. ágúst 2009
Verð
Kr. 189.900 á mann í tvíbýli. Aukagjald fyrir einbýli er 25.000 Innifalið: Flug, flugvallaskattar, gisting, fullt fæði nema drykkir, allur flutningur og fararstjórn.
Fararstjórar
Steinunn Harðardóttir leiðsögumaður og slóvenskur fararstjóri.
Nánar
Nánari upplýsingar og bókanir hjá Vita.is í síma 570 4444 eða á tölvupósti
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
|
|