Forsíða Áfangastaðir Vestur-Lýkía Vestur-Lýkía haust 2011
Vestur Lýkia - ferðatilhögun haust 2011

Gönguævintýri í vestur-Lýkíu i Tyrklandi

17. - 27. september og 27. september - 8. október

Dagur 1 Reykjavík - Milas

IMG_6344-1 Flogið með Icelandair kl 0930 lent í Bodrum kl 18:05 með FI1540. Ekið á hótel Gunes í bænum Ovacik sem er rétt hjá hinu rómaða Blá lóni ( Öludeniz) þar verður gist í 6 nætur.
Akstur frá Milas flugvellinum 3- 4 tímar.

Dagur 2 Tólf eyjar Fethiye flóans, bátsferð

Frá höfninni í Fethiye er haldið í ævintýralegt ferðalag milli 12 eyja sem leynast í Fetihye flóanum. Það er hægt að synda á milli sumra eyjanna og í einstöku sjávarlóni sem er á einni þeirra. Við höfum eigin bát til umáða allan daginn og förum í land á eyjunum og skoðum okkur um. Einnig gefast mörg tækifæri til að taka sundsprett í volgum sjónum í hádeginu er svo boðið upp á grillmat.

Dagur 3 Saklikentgilið og Patara

Í dag er haldið inn í Saklikentgilið (týnda gilið) til að skoða einstakar klettamyndanir sem vatnið hefur grafið í myndbreittan marmara. Gilið er 18 kílómetra langt með 300 metra háum klettaveggjum og sumstaðar svo þröngt að hægt era teygja sig veggja á milli. Til að skoða þann hluta Saklikent sem er opinn almenningi þarf að ganga eftir árfarveginu og vaða volga ána sem rennur fram mis straumhörð. Næst er haldið í gönguferð um fjölbreytt landslag meðfram einstakri vatnsleiðslu frá tímum Rómverja en segja má að hún sé verkfræðilegt undur. Gangan endar í fornborginni Patara sem verið er að grafa upp, hún er einstaklega vel varðveitt þar sem hún hvarf smá saman undir sand. Í borginni er meðal elsti viti sem þekktur er, sigurbogi, hringleikahús, rómversk böð, kirkjurústir og marg fleira spennandi. Patara liggur við 14 kílómetra langa sandströnd sem er friðuð bæði vegna rústanna og sæskjaldbakanna (caretta caretta) sem þar grafa egg sín. Ganga ca 4 -6 tímar. ca 12 kílómetrar

Dagur 4 Ovacik- Faralya

Lykia_2_small Gangan hefst þar sem hin 500 kílómetra langa Lýkíuleið byrjar hún liggur eftir endilangri Lýkíuströndinni, landsvæði þar sem Lýkíar bjuggu á öldunum fyrir krist. Á leiðinni eru fjölbreyttar minjar eftir þessa íbúa meðal annars grafhvelfingar og steinkistur. Þennan dag eru það þó ekki fornminjar sem fanga augað heldur einstakt útsýni yfir ströndina fyrir neðan. Gangan hefst í ca 800 metra hæð á öxl ‘Baba Dag’ fjallsins sem er 1960 m hátt og gengið er nokkur hundruð metra niðuð eftir fornum stíg, gamalli þjóðleið sem tengir þorpin Kozagac og Kirme. Á leiðinni færist maður æ nær hinni ægifögru Öludenizströnd með snjóhvítann sand og túrkisblátt haf. Við blasir einstakt lón, ‘Blá lónið’ umlukið hvítri sandræmu. Göngutími 4-5 tímar um 11 km. Auðvellt er að stytta gönguna eða bæta við nokkrum kílómetrum.

Dagur 5 Kayakoy- Oludeniz

Haldið að gríska draugabænum Kaya Koy, gengið milli yfirgefinna húsanna í þorpinu og inn í hálfhrunin hús, kapellu og kirkju. Leiðinn liggur síðan hátt upp fyrir ströndina og brátt blasir við einstakt útsýni yfir Nikilásareyjuna og Öludenizströndin opnast frá nýju sjónarhorni. Þá liggur leiðin gegnum furuskóg niður á strönd þar sem hægt er að baða sig í kristaltærum sjónum. Seinni hluta dagsins er varið í útieldhúsinu hjá Dean og Ayse þar sem hún kennir hópnum að elda tyrkneskan mat. Ayse hefur menntum í ferðamálafræðum með áherslu á tyrkneska matargerð, hún er líka leiðsögumaður og sérfræðingur í fornum rústum. Ef með þarf verður hópnum skipt í tvennt, helmingurinn gengur þá fyrri hluta dagsins á meðan hinir eru í eldhúsinu og síðan öfugt. Um kvöldið er sest að snæðingi undir trjánum í garðinum hjá Deans og Ayse. Gengið 3-4 tíma. 6-8 kílímetrar

Dagur 6 Gönguferð um Kayakoy þorpið og Kuleklaustur

Lykia_5_small Snemma morguns er lagt upp í skemmtilega gönguferð um Kayakoy þorpið framhjá moskum, kirkjurústum og frjósömum ökrum og endað í hinu yfirgefn í Kuleklaustri. Það er á afskekktum stað byggt utan í klettavegginn með útsýni út á sjóinn. Gegnið ca 12-16 km. (eftir óskum) hækkun ca 150 metrar. Síðdegis er hægt að bregða sér í ævintýralega kajakferð .(ekki innifalið)

Dagur 7 Bátsferð í árósum og rústirnar í Caunos

Nú pökkum við farangrinum okkar og yfirgefum Ovacik. Leiðin liggur í fljótabæinn Dalyan en þangað er rúmlega klukkutíma akstur. Þaðan er haldið með báti niður ána og inn í undurfagra árósa. Þetta svæði býður upp á einstaka náttúrufegurð og sérstætt dýralíf og gróður. Þegar sjávarborð hækkar flæðir sjór inn í ána og ber sjávarfiska með sér upp í Koycegizvatnið. Áður en fiskarnir ná að forða sér aftur til sjávar eru flestir veiddir og grillaðir við árbakkana. Báturinn okkar tekur land á Iztuzu ströndinni þar sem það gefst tækifæri til að fá sér sundsprett. Ströndin er friðuð vega ‘caretta caretta’ sæskjaldbakanna sem þar verpa. Fyrir nokkrum árum stóð til að byggja ferðamanna þorp á ströndinni en vegan baráttu náttúruverndarsantaka tókst að stöðva þau áform. Á leiðinni til baka er staðnæmst í fornborginni Caunos og rústirnar skoðaðar. Gist á hóteli í Dalyan.

Dagar 8, 9 og 10 Frjálsir dagar í Dalyan

Lykia_small Þá má nota til að heimsækja aftur hina undurfögru Izuzu strönd og taka stundsprett þar eða njóta lífsins í hótelgarðinum. Þá er hægt að láta dekra við sig í tyrknesku baði, fara í tveggjatíma siglingu með ströndinni til að skoða og gefa ‘Caretta caretta’ skjaldbökunum. (verð ca.16 eu) Fara í ferð til Rhódos og ýmislegt fleira.

Dagur 11 Ekið til Milas (ca 3 tímar) og þaðan flogið heim

Með FI 1541 klr 18:55 og lent í Keflavík kl 21:55

 

 

 

 

 

Erfiðleikastig 1 fjall til 2 fjöll mínus

Allar göngur í ferðinni eru léttar og farið er eftir góðum eða nokkuð góðum stígum. Hækkun er ekki meira en 2-300 metrar og dagleiðir 2-5 tímar. Miðað er við að þátttakendur hafi gengið nokkuð reglulega í nágrenni sínu eða stundað einhverja líkamsþjálfun. Auk þess er góð heilsa mikilvæg og áhugi fyrir að skoða umhverfi sitt gangandi. Ath suma dagana er hægt að bæta við göngurna svo úr verði allt að 16 kílómetrar.