Forsíða

Gönguferð um Lykíuleiðina í Tyrklandi


Í hefðbundnum takti


Lykia_small Tyrkland er einstaklega spennandi og áhugaverður áfangastaður sem býður upp á skemmtilegt og fjölbreytt gönguland. Fólkið er elskulegt, maturinn góður og náttúran einstaklega falleg. Göngu-Hrólfur hefur boðið upp á gönguferð eftir Lýkíuleiðinni kringum bæina Cirali og Kas í nokkur ár við mjög góðar undirtektir. Cirali er sveitaþorp við langa og fallega sandströnd sem er friðuð vegna þess að sæskjaldbökur verpa þar og Kas er skemmtilegur hafnarbær byggður á rústum fornborgarinnar Antiphellos. Gengið er eftir áhugaverðum slóðum á Lykíuleiðinni sem er fyrsta langa gönguleið Tyrklands, 500 kílómetrar í allt. Þegar hún var opnuð árið 2000 var hún samstundis valin ein af tíu bestu gönguleiðum í heimi af dagblaðinu Sunday Times. Farið er um einstakar rústir fornborga og milli logandi jarðelda Cimenea á Yanartas en þar brennur jarðgas í jörðu. Þá stendur áhugasömum göngugörpum til boða að klífa fjallið Olympos en aðrir geta gengið hálfa leið og notið fjallakyrrðar í einstökum Cetrusskógi. Einnig er siglt yfir hina sokknu borg Kekova og komið við í bænum Myra til að skoða kirkju heilags Nikulásar (jólasveinsins) þar sem stórkostleg grafhýsi eru grafin í klettavegg og hið einstaka hringleikahús sem þar er.


Dagur 1 Reykjavík-Antalya-Cirali

Eftir beint flug er lent á flugvellinum í Antalya. Þaðan er haldið samstundis til þorpsins Cirali, tveggja til þriggja tíma akstur og gist þar næstu nætur.

Dagur 2 Cirali-Olympos-Ulupinar-Yanartas

Fyrir hádegi er farið í létta göngu og haldið eftir ströndinni að rústum hins forna Olymposbæjar. Síðan er gengið til þorpsins Ulupinar. Eftir að hafa stoppað á spennandi veitingastað er gengið til baka um fallegan dal og furuskóg. Útsýnið er einstakt yfir Olymposfjallið (Tahtali) og fagurblátt hafið, leitast er við að vera um sólarlagsbil við hina eilífu elda (Chimaera) sem stöðugt brenna úr iðrum jarðar.

Dagur 3 Tahtali (hið forna fjall Olympos)

Gangan hefst við bæinn Bycik í um 1.000 metra hæð. Þaðan er haldið eftir ævagömlum cedrusskógi að beitilöndum fjárhirða við rætur Tahtali tindsins (2.340 m), þeir sem kjósa geta haldið alla leið á toppinn þar sem þeir njóta einstaks útsýnis og vogskorin ströndin blasir við svo langt sem augað eygir. Það er líka hægt að taka það rólega, ganga upp í fjallaskarð sem er í 1.800 metra hæð og njóta sérstæðs umhverfisins þar. Halda síðan niður til Bycik og bíða fjallagarpanna á tehúsi bæjarins.

Dagur 4 Cirali-Maden

Ganga dagsins hefst við hótelið í Cirali. Þaðan er gengið meðfram ströndinni áleiðis til Phaselis hinnar fornu borgar Rhódosbúa. Þar tóku menn vel á móti Alexander mikla sem dvaldi vetrarlangt í borginni áður en hann lagði í sína miklu herferð austur til Persíu. Það er þó ekki gengið alla leið þangað heldur snúið við á miðri leið og haldið sömu leið til baka. Fólk getur því stjórnað því sjálft hversu langt það vill ganga. Farið er eftir skemmtilegum stígum meðfram klettóttri strönd og um litlar fallegar sandfjörur. Meðal annars er gengið eftir ströndinni við Maden þar sem sjá má merkilegar námarústir.

Dagur 5 Cirali-Arycanda-Kas

Þennan morgun pakka menn farangrinum og yfirgefa gististaðinn í Cirali. Nú er haldið til strandbæjarins Kas þar sem gist verður næstu 5 nætur. En fyrst liggur leiðin upp í fjöll og komið er við í hinum vel varðveitta fornbæ Arycanda. Þar eru fjölmargar og einstakar rústir, meðal annars leikhús, rómverskt baðhús, fjölleikahús, musteri Heliosar og sérlega fallegt útsýni. Gist í Kas.

Dagur 6 Kas-Phellos

Gengið er eftir fornri leið milli fornborganna Antiphellos og Phellos en Kas stendur nú á rústum þeirrar fyrrnefndu. Farið er eftir Cukurbak sléttunni um sérkennilegt steinhúsaþorp að rústum Phellos. Þar uppi á hæð er mikið af einstaklega fallegum steinkistum og mikið víðsýni, við blasa Lýkíufjöllin (Akdag 3.024m og Kyzlarsivrisi (3.070 m). Gist í Kas.

Dagur 7 Kilincli-Appolonia-Aperlae-Kekova

Ekið til Kilincli og gengið þaðan upp á akrópólíshæðina í Apolloníu og síðan eftir fornri leið fjárhirða að rústum hafnarborgarinnar Aperlae. Síðdegis er farið í bátsferð og hinar sérstæðu neðansjávarrústir Kekóvaeyjarinnar skoðaðar ásamt ýmsu fleiru áhugaverðu þar um kring. Á leiðinni heim til Kas er komið við í fiskimannaþorpinu Ucagiz. Hægt er að taka hressilegan sundsprett í Teresanflóanum.

Dagur 8 Frjáls dagur

Mörgum finnst kærkomið að fá einn rólegan dag til að skoða sig um í bænum eða bara slaka á í sólinni. Aðrir velja að fara í létta gönguferð um næsta nágrenni bæjarins, fara í nokkurra tíma kajakferð meðfram ströndinni, svífa í svifdreka eða prófa köfun. Allt slíkt er í boði í Kas sem er mikill útivistabær.

Dagur 9 Bayindyr -Liman Agzi-Kas

Gangan hefst skammt frá bænum Bayindyr. Þar er mikið af hálfhrundum steinhlöðnum húsum en einnig má sjá nýjar villur. Áður fyrr fluttu íbúarnir í sel á Elmalihásléttunni á sumrin þegar vatnið í vatnsbólunum þornaði og hitinn í bænum gat orðið óþolandi. Nú eru flestir íbúarnir fluttir í fjöllin þar sem þeir stunda meðal annars eplarækt. Gengið er niður að ströndinni um engi, akra og ólívulundi. Síðan er haldið meðfram ströndinni eftir Lykíuleiðinni og staldrað við í lítilli og skemmtilegri vík, Liman Agzi (hafnarmynnið), þeir sem vilja geta tekið þar sundsprett. Gist í Kas.

Dagur 10 Kas-Myra-Antalya

IMG_6725 Þá er Kas yfirgefin og haldið áleiðis til Antalya. Á leiðinni er komið við í fornborginni Myru, þaðan sem Sánkti Kláus er upprunninn, öðru nafni jólasveinninn. Fyrirrennari hans, heilagur Nikulás, var biskup í Myru og þar stendur kirkja hans. Stórfengleg grafhýsi eru hoggin í klettaveggina og þar er líka vel varðveitt rómverskt leikhús. Flogið heim frá Antalya.


Þessi ferð er 2 fjöll
Í hluta göngunnar er farið um ójafnt landslag með ógreinilegum stígum. Hækkun getur verið 6-800 metrar og sumar dagleiðir geta tekið 8 tíma. Til að njóta ferðarinnar þurfa þátttakendur að hafa reynslu af fjallgöngum og gönguferðum úti í náttúrunni eða verið virkir í einhverri góðri líkamsþjálfun. Og það er nauðsynlegt að vera í góðu líkamlegu formi. Þeir sem vilja geta gengið á fjallið Ólympos en það er um 2.400 metrar og hækkun er þá 1.400 metrar. Aðrir geta látið sér nægja að fara í skarð sem er í 1.800 metrum.

Verð á mann m.v tvo saman í herbergi 
kr. og  x vildarpunkta 

*verð án vildarpunkta  kr.

Aukagjald fyrir einbýli  kr.


Innifalið 
•Flug og skattar
•Gisting og  allir flutningar 
•Kvöldverðir á hótelunum Grand Aygun Cirali  og Aqua princess Kas
•Hádegisnesti og millimál
•Bátsferð í Kekova þar sem boðið er upp á grillmat
•Aðgöngumiðar í rústir fornborganna Olympos, Chimera, Arycanda, Simena og Myra og í Nikulásarkirkjuna.
•Íslenskur fararstjóri og tyrkneskur göngugarpur.