Forsíða Upplýsingar Erfiðleikastig

Erfiðleikastig

Þeir sem taka þátt í gönguferð þurfa að vera nokkuð vanir gönguferðum úti í náttúrunni hér heima (nánari erfiðleikaflokkun má sjá hér að neðan).

Þetta eru yfirleitt ekki erfiðar göngur hver um sig en þær krefjast þó nokkurs þols þar sem þær taka flestar heilan dag. Það getur verið lýjandi að fara í langar gönguferðir dag eftir dag.

Við hjá Göngu-Hrólfi höfum komið okkur upp skala; til að flokka gönguferðir út frá hversu erfiðar þær eru fyrir þáttakendur. Þetta er okkar eigið flokkunarkerfi og er því ekki hægt að bera það saman við önnur slík. Erfiðleikastigin taka meðal annars mið af eftirfarandi þáttum:
  1. Hækkun og lækkun sem þarf að sigrast á í ferðinni.
  2. Lengd göngu í kílómetrum.
  3. Tími sem gangan tekur í raun. Hækkun og gönguland skiptir þar miklu máli.
  4. Eðli gönguslóðanna, það eru bæði sléttir stígar og gróft ójafnt land með ógreinilegum eða engum stígum.
  5. Styrkur og þol.

1 fjall:
Allar göngur í ferðinni eru léttar og farið er eftir góðum eða nokkuð góðum stígum. Hækkun er ekki meira en 2-300 metrar og dagleiðir 2-5 tímar. Miðað er við að þátttakendur hafi gengið nokkuð reglulega í nágrenni sínu eða stundað einhverja líkamsþjálfun. Auk þess er góð heilsa mikilvæg og áhugi fyrir að skoða umhverfi sitt gangandi.

2 fjöll:
Í hluta göngunnar er farið um ójafnt landslag með ógreinilegum stígum. Hækkun getur verið 6-800 metrar og sumar dagleiðir geta tekið 8 tíma. Til að njóta ferðarinnar þurfa þátttakendur að hafa reynslu af fjallgöngum og gönguferðum úti í náttúrunni eða verið virkir í einhverri góðri líkamsþjálfun. Og það er nauðsynlegt að vera í góðu líkamlegu formi.

3 fjöll:

Sumar gönguleiðir eru erfiðar vegna þess að undirlagið er mjög ójafnt, e.t.v. þarf að klifra einhvern hluta leiðarinnar og jafnvel að nota reipi til halds og öryggis. Dagleiðir geta verið 8-10 tíma langar og hækkun yfir 800 metra. Það er nauðsynlegt að hafa þjálfun úr fjölbreyttum fjallgöngum á Íslandi, vera í mjög góðu formi og laus við alvarlega lofthræðslu.