Gönguferðir
Meginreglan er sú að gengið er frá gististað á morgnanna og komið aftur á kvöldin. Í sumum tilfellum eru þó teknir almennisvagnar eða svokallaðir fjallataxar. Farið verður í gönguferðir alla dagana nema e.t.v. þegar ekið er á milli gististaða.
Flesta dagana er gengið 10 til 20 km á dag eða í 5 til 8 tíma, en reynt er að hafa einn léttari göngudag um miðbik ferðarinnar. Þeir sem vilja geta tekið sér frí frá göngu einn eða fleiri daga.
Göngurnar eru ekki erfiðar en það er alls ekki hægt að segja að þær séu auðveldar. Það er ekkert klifur en oft gengið á stígum eða slóðum sem geta verið ógreinilegir og slitnir og stundum nánast vegleysur. Stígarnir eru gjarnan lagðar ávölum steinum og undirlagðið því oft hart og ójafnt. Nauðsynlegt er að vera í góðum gönguskóm.
Í ferðum Göngu Hrólfs er yfirleitt gist á hótelum eða gistiheimilum í tveggja manna herbergum með sturtu eða baði.
Farangurinn er fluttur á milli gististaða þannig að á göngunni þarf aðeins að bera dagpoka með aukafötum og sameiginlegu nesti. Það er rétt að taka fram að ýmsar aðstæður svo sem veður og fleira geta orðið til þess að víkja þarf frá upprunalegri áætlun og verður þá alltaf leitast við að finna öruggustu og heppilegustu lausnina.
Í öllum gönguferðum er lögð áhersla á að heimsækja viðkomandi land utan heitasta árstíma. En veður er nokkuð sem aldrei er hægt að sjá fyrir og því er mikilvægt að gera sér grein fyrir að hiti eykur álagið og gerir gönguferðirnar mun erfiðari en ella.
Í ferðum er yfirleitt hægt að sleppa einum eða fleiri göngudögum og eru menn hvattir til þess að taka þann möguleika með í reikninginn þegar við upphaf ferðar svo hvíldardagurinn virki ekki sem uppgjöf heldur sem skipulagður frídagur.
|
|