Forsíða Upplýsingar Útbúnaður

Útbúnaður

Góðir gönguskór eru nauðsynlegir, gjarnan þeir sömu sem notaðir eru í gönguferðum hér heima en það er einnig gott að taka með sér létta göngusandala. Mörgum finnst þægilegt að ganga með göngustafi.

Regnföt eru nauðsynleg, því það getur alltaf rignt í fjöllunum. Það er gott að hafa létta regnslá því þótt það sé hlýtt getur gengið á með skúrum.

Nauðsynlegur fatnaður er húfa eða hattur til að verjast sólinni, stuttbuxur, bolur sem og léttar síðbuxur og langerma skyrta. Það er bráðnauðsynlegt að hafa sólvörn til að verjast sólbruna, gelpástur og fleira slíkt því margir fá hælsæri þegar þeir ganga í meiri hita en þeir eru vanir og á harðara undirlagi.

Einnig er ágætt að hafa flugnafælu og "afterbite" í farteskinu því stundum er eitthvað um moskitóbit. Þá þarf léttan bakpoka (dagpoka) fyrir birgðar dagsins, sem eru aukafatnaður, drykkir, diskar, bollar, hnífapör og jafnvel hitabrúsi fyrir þá sem vilja hafa með sér heitan eða kaldan drykk á göngunni sem og hluti af sameiginlegu nesti. Gott er að hafa sessu til að tylla sér á í nestistímum.

Einnig er nauðsynlegt að hafa létt, þægileg og hlý föt, t.d. flíspeysu. Það getur orðið svalt upp í fjöllunum og eins á kvöldin