Leiðsögumaður og útvarpsmaður. Er hugmyndafræðingur og aðalfararstjóri Göngu-Hrólfs og hefur leitt ferðir hans frá upphafi. Hún þróar og skipuleggur ferðirnar og hefur verið fararstjóri í ferðum í hefðbundnum takti á Majorka, Krit, í Toskana, Pyreneafjöllum, Slóvakíu, Tyrkland, Tenerife og í sælkeratakti í Toskana. |
Sérfræðingur í spænsku við Háskólann í Reykjavík. Hefur farið með hópa í ferðir í Pyreneafjöllin og til Majorku. |
Mikill áhugamaður um útivist og ferðamennsku. Hefur víða farið á fjöll, innan lands sem utan, m.a. Suður Ameríku, Grænlandi, Himalaya, Ölpunum og víðar. Einn af stofnendum ferðatímaritsins Útiveru ásamt því að vera meðlimur í listahópnum Norðanbáli, flugbjörgunarsveitinni og sitthvað fleira. Er fararstjóri í fjalla- og jöklaferðum á Íslandi og hefur farið ferðir til Krítar og Tyrklands fyrir Gönguhrólf. |
Hefur leitt gönguhópa um Tenerife. Hún er umsjónamaður hjólaferða Úrvals Útsýnar og hefur stundað hjólreiðar erlendis frá árinu 2002. Auk þess hefur hún reynslu af að fara með hópa fólks í ferðir um hálendi Íslands. Kristín leggur áherslu á að öllum líði vel, hópurinn njóti ferðarinnar saman og að ferðalagið sjálft verði þátttakendum ógleymanleg upplifun hún er þjóðfræðingur að mennt og leggur áherslu á að fræða hjólreiðafólk um siði og venjur þeirra þjóða sem heimsóttar eru. |
|
Prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands. Hefur farið í ferðir til Pyreneafjalla og til Majorka. |
|
Ólst upp í Provence og þekkir vel til héraðsins sem er rómað fyrir matargerð. Hún á franskan föður og íslenska móður og talar góða íslensku. Isabelle bjó mörg ár hér á landi og kenndi meðal annars frönsku hjá Aliance Francaise. Hún er er flutt til Frakklands,býr í Normandie og hefur numið þar ferðamálafræði og vinnur þar nú sem leiðsögumaður. |
|
Fararstjóri í Maddona í Dólomitunum. Þar hefur hann jafnframt verið skíðafararstjóri og þekkir vel til þar á bæ. |
Annar stofnanda Göngu-Hrólfs. Hann er arftaki Jóns Bö og fræðir landsmenn um Íslendingasögurnar hjá Endurmenntun Háskóla Íslands. Hann hefur farið í ferðir til Grikklands. |
Rithöfundur. Hefur farið í ferðir til Grikklands. |
Blaðamaður og rithöfundur. Hann er mikill áhugamaður um mat og matargerð og hefur farið í matgæðingaferð í Toscana. |
Hefur farið í skálaferð í Dólómítana. |
|
|
|
|
|
|