Um Göngu-Hrólf

IMG_4621 Vinsældir gönguferða hafa aukist mikið á undanförnum árum og margir gönguhópar orðið til, bæði beint og óbeint. Til að sameina þessa hópa og annað áhugafólk var stofnaður árið 1998 gönguklúbburinn "Göngu-Hrólfur". Markmiðið var fyrst og fremst að koma til móts við þá sem vilja taka þátt í skipulögðum gönguferðum erlendis og kynnast á þann hátt náttúru og mannlíf í fjarlægum löndum.

Við höfum verið einstaklega heppin með samstarfsaðila. Ferðirnar og skipulag þeirra hafa líka tekist í alla staði frábærlega vel og verið sannkölluð ævintýri. Þeir eru æ fleiri sem njóta þess að ganga um stórbrotið landslag og kynnast um leið náttúru og mannlífi fjarlægra landa.

Gönguferð um fjallastíga og gamlar leiðir gefur líka einstaka möguleika til að upplifa umhverfið í rólegum takti og kynnast þannig venjum, siðum og menningu annarra þjóða.


300px-Rollo_Rouen Hinn upphaflegi Göngu-Hrólfur

Göngu-Hrólfur, sá eini sanni, mikill kappi og víkingur, var uppi í kringum 900. Samkvæmt okkar heimildum hét hann Hrólfur, sonur Hildar, dóttur Hrólfs nokkurs nefju og Rögnvalds Mærajarls, þess sem fékk að skera hár Haraldar konungs hárfagra eftir að Haraldur hafði lagt Noreg undir sig.

Hrólfur var svo mikill maður vexti að enginn hestur gat borið hann og því gekk hann hvert sen hann fór. Af þessum sökum var hann kallaður Göngu-Hrólfur. Þrátt fyrir að Rögnvaldur Jarl væri traustasti stuðningsmaður Haraldar hárfagra varð Hrólfur fyrir reiði konungs sem gerði hann útlægan úr Noregi. Þá hélt Göngu-Hrólfur í víking og herjaði um Frakkland þar sem hann eignaðist mikið jarlsríki. Hann byggði það Norðmönnum og kallaði síðan Normandí.

Í frönskum heimildum er Göngu-Hrólfur kunnur sem Rollo og af ætt hans eru komnir Normandíar, konungar Suður Ítalíu og allir konungar og drottningar Englands. Bræður Hrólfs voru þeir Torf-Einar sem Orkneyjajarlar röktu ættir sínar til og Hrollaugur landnámsmaður á Síðu sem Síðumenn eru komnir af.